Fréttir

FRÉTTIR/NEWS

17.3.2010

Þá byrjar þýðan ...

.... og drullan !!

Besti mánuður ársins er hálfnaður (eða þannig) endalausar rigningar og þar af leiðandi drulla og allt skítugt og viðkvæmt. Jakks en það góða er að það styttist í sumar og græn grös.

En það er auðvitað fullt um að vera, mót reglulega og mikið fjör. Það sem hæst stendur undanfarið er þriðja mót KEA-mótaraðarinnar sem var fimmgangur og mætti Ásdís þangað með gullið sitt hana Von frá Árgerði. Endaði hún þriðja þar með 6.88 í einkunn. Biggi fékk svo Týju lánaða í fimmganginn og endaði sjötti. Þar með er Ásdís með naumindum orðin efst í stigasöfnuninni. Lokakvöldið verður mjög spennandi þar sem getur allt breyst en þar verður keppt í slaktaumatölti og skeiði.

Fimmgangur      
A úrslit 1. flokkur -       
      
 Mót:  IS2010LET016 - KEA mótaröðin fimmgangur  Dags.: 
 Félag:  Léttir   
  Sæti     Keppandi    
1     Baldvin Ari Guðlaugsson   / Krækja frá Efri-Rauðalæk  7,05  
2     Stefán Friðgeirsson   / Dagur frá Strandarhöfði  6,93  
3     Ásdís Helga Sigursteinsdóttir   / Von frá Árgerði  6,88  
4     Birgir Árnason   / Eyvör frá Langhúsum  6,17  
5     Þorbjörn Hreinn Matthíasson   / Týr frá Litla-Dal  5,93  


Fimmgangur      
B úrslit 1. flokkur -       
      
 Mót:  IS2010LET016 - KEA mótaröðin fimmgangur  Dags.: 
 Félag:  Léttir   
  Sæti     Keppandi    
1     Þorbjörn Hreinn Matthíasson   / Týr frá Litla-Dal  6,36  
2     Stefán Birgir Stefánsson   / Týja frá Árgerði  6,26  
3     Viðar Bragason   / Sísí frá Björgum  6  
4     Höskuldur Jónsson   / Sámur frá Sámsstöðum  5,95  
5     Rasmus Christjansen   / Styrkur frá Björgum  5,26  



Stigasöfnun í KEA mótaröðinni
Ásdís Helga Sigursteinsdóttir    21
Viðar Bragason                          20
Baldvin Ari Guðlaugsson 18
Birgir Árnason                            10
Stefán Friðgeirsson 8
Stefán Birgir Birgisson 7
Þorbjörn Hreinn Matthíasson 7
Pétur Vopni Sigurðsson              6
Sveinn Ingi Kjartansson               5
Guðmundur Karl Tryggvason      3
Þórhallur Þorvaldsson 2
Atli Sigfússon                             2
Anna Catharina Gros                  1
Jón Björnsson                            1
Pernille Lyager Möller 1
Höskuldur Jónsson 1
Rasmus Christjansen 1

Svo var frí á föstudeginum fyrir Vonsu kellinguna og svo á laugardeginum brunað af stað aftur en var fyrir löngu búið að óska eftir henni í liðið hjá Riddurum Norðursins á Áskorendamóti Riddaranna. Mættum við þangað í flottu formi og sigruðum töltið eftir sætaröðun á móti Bjössa á Vatnsleysu.Og enduðu Riddararnir með að sigra heildarkeppnina í FYRSTA sinn og var mikil ánægja með það :) Hér eru úrslitin úr þessu móti ...

Úrslit Áskorendamóts Riddara Norðursins 2010

Fjórgangur   
                  
        
Knapi / Lið / Einkunn

1. Sölvi Sigurðarson / Riddarar 6,90

2. Fanney Dögg Indriðadóttir / Þytur 6,80

3. Viðar Bragason / Lúlli Matt 6,63

4. Júlía Ludwiczak / Narfastaðir 6,43

5. Hörður Óli Sæmundsson / Vatnsleysa 5,43


Fimmgangur

Knapi / Lið / Einkunn

1. Bergur Gunnarsson / Narfastaðir 6,69

2. Þórhallur / Lúlli Matt 6,64

3. Elvar Logi Friðriksson / Þytur 6,50

4. Guðmundur Þór Elíasson / Riddarar 5,76

5. Þórir Jónsson / Vatnsleysa 5,33


Skeið

Knapi / Lið / Tími

1. Sigvaldi Lárus Guðmundsson / Vatnsleysa 5,22

2. Íris Sveinbjörnsdóttir / Narfastaðir 5,34

3. Laura Benson / Hólaskóli 5,55

4. Ómar Ingi Ómarsson / Hólaskóli 5,67

5. Brynjólfur Þór Jónsson / Riddarar 5,70


Tölt

Knapi / Lið / Einkunn

1. Ásdís Helga Sigursteinsdóttir / Riddarar 7,28

2. Björn Jónsson / Vatnsleysa 7,28

3. Riikka Anniinna / Narfastaðir 6,72

4. Þorbjörn Matt / Lúlli Matt 6,61

5. Tryggvi Björnsson / Þytur 0,00



Stigakeppni

Sæti / Lið / Stig

1. Riddarar 15

2. Narfastaðir 14

3. Vatnsleysa 11

4. Lúlli Matt 10

5. Þytur 10


Fann þessu flottu mynd á netinu, frábært móment .. Ætli guð sé að brosa til okkar gegnum fuglana sína ?

Skrifað 17.3.2010 kl. 17:27 af asdishelga

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

6.3.2010

Hláka ...

Jæja þá er sælan úti í bili, 3-7°c og feikna rok núna a.m.k tvo daga í röð og ef maður gefur sér nokkrar mínútur til að horfa útum gluggann þá getur maður séð snjóinn hverfa. Um það bil 80% af snjónum sem var hér í kringum okkur í fyrradag hvarf í gær og má sjá STÖÐUvötn útum allt, á öllum vegum, túnum og gjótum.

En maður má ekki láta deigan síga, veðrið hlýtur að batna en ég á eftir að kynna nokkrar hryssur fyrir ykkur sem eru hjá okkur í vetur:


Árdís frá Skjólgarði er undan Prins frá Úlfljótsvatni og er á 6.v.


Mjög flott klárhryssa sem er komin vel á veg í gangsetningu.


Endilega skoðið fleiri myndir af Árdísi með því að smella á síðustu myndina.

Næst er hryssa á 4.v undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu:


Hún heitir Minning frá Naustum og er rétt rúmlega mánaðartamin er þessar myndir voru teknar.


Heilmikill töltari, töltið alveg eðlislægt og hreingengt og brokkið fer vaxandi. Sjá fleiri myndir af Minningu með því að smella á þá síðari.

Svo síðust en ekki síst (í bili) er Rökkvadís frá Kjartansstaðakoti


HÉR má sjá fleiri myndir af Rökkvadís
Eigum auðvitað "vonandi" ræktunarhryssu okkar framtíðar nú uppí Árgerði þar sem hún hefur verið inni og gerð bandvön núna undanfarna tvo mánuði. Hróðsdótturin okkar hún Gefjun frá Árgerði undan Glæðu frá Árgerði



Hér má sjá fleiri myndir af "vonandi" hestagullinu okkar:)

Skrifað 6.3.2010 kl. 10:41 af asdishelga

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

1.3.2010

Frábært myndaveður!!


Askur frá Árgerði, stóðhestur 4.v
 
Í dag var sannarlega frábært veður, sól og frost á nýjan leik. Melarnir reyndar á kafi í snjó en við erum svo heppin að hafa malarveg austan við Eyjafjarðarána og þessa fínu reiðbrú yfir.




Askur frá Árgerði er foli sem hefur verið hjá okkur síðan um miðjan desember. Er þetta alhliða hestur, geðgóður og með allar gangtegundir galopnar.




Smellið á síðustu myndina til að sjá fleiri myndir af Aski.

Svo erum við einnig með systir Asks sammæðra undan Gná frá Árgerði og er hún undan Norðurlandameistaranum Svip frá Uppsölum. Er hún á fimmta vetur og heitir Lipurtá frá Árgerði og var hjá okkur í 2-3 mánuði í fyrravor og var ekki tilbúin í frekari þjálfun þá.



Lipurtá frá Árgerði 5.v -
Fleiri myndir af Lipurtá og einnig Von og Hrifningu ef smellt er á myndina.





Rispa frá Ey II 5.v. Undan Kiljan frá Ey II.

Af Rispu er svipaða sögu að segja og Lipurtá. Var hjá okkur í rúma tvo mánuði á síðasta ári 4.v og ekki tilbúin í frekari þjálfun þá. Kom svo á ný um miðjan janúar.




Og Þoka frá Þrastarhóli 8.v undan Ljúf frá Brakanda.

Þoka kom í mánuð síðastliðið sumar í drjúgmikilli yfirvigt og kom svo aftur nú í janúar. Hefur nú lagt heilmikið af og er nokkuð falleg hryssa þar undir. Er hún í gangsetningu og gengur það ágætlega, skapið og sjálfstæðin talsvert að þvælast fyrir en feikna hreyfingar og alveg þess virði að sækja það.


Steinþór Örn skemmti sér vel með okkur um helgina. Veðrið yndislegt eins og sjá má.

Skrifað 1.3.2010 kl. 20:29 af asdishelga

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

28.2.2010

Sunnudagar til sælu..



Jæja þá heldur áfram kynning á efniviðunum okkar hér í húsinu.
Hér kemur Birta frá Skriðulandi en hún er á fjórða vetur og hefur verið hjá okkur frá áramótum.
Er þetta gullfalleg klárhryssa undan Gustsyninum Stormi frá Efri-Rauðalæk og er búin að vera í gangsetningu og er að verk um það bil hálfnað.







Smellið á síðustu myndina til að sjá fleiri myndir.

Skrifað 28.2.2010 kl. 21:22 af asdishelga

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

27.2.2010

Ekki meiri snjó - Nicht mehr schnee bitte ...


Gísli og Skrugga frá Kýrholti á Bautatölti 2010

Jæja ýmislegt hefur á daga okkar drifið síðan síðast. Bautatöltið var um helgina sem leið og gekk það alveg ljómandi, Ásdís og Gísli kepptu þar með sitthvor tvö hrossin, Gísli með Hvin frá Litla-Garði og Skruggu frá Kýrholti og Ásdís með Von frá Árgerði og Hrifningu frá Kýrholti. Komust þau bæði í B-úrslit með þær Von og Skruggu og enduðu leikar svo að Ásdís endaði í 6.sæti og Gísli í 10.sæti. Skrugga í sínu alfyrsta móti og Von á sínu fyrsta innanhús ísmóti.
Von hefur einnig fengið boðsmiða á Stjörnutölt 2010 sem verður haldið 20.mars.


Ásdís og Von


Gísli og Hvinur


Ásdís og Hrifning



Einnig var nú síðastliðinn fimmtudag annað mótið í KEA-mótaröðinni og fór Ásdís þangað með hana Skruggu einnig og Gullveig fór með hestinn sinn. Gekk það allt saman vel og endaði Ásdís í 4-5 sæti eftir úrslit jafnar Bigga kallinum og Vísi frá Árgerði en urðu heppnar í hlutkesti og náðu aukastigi þar. Er Ásdís þá í öðru sæti í stigakeppninni með 15 stig, 3 stigum fyrir neðan Viðar Braga. Er fimmgangur næst og verður það spennandi.



Hér er mynd úr úrslitunum í fjórgangi. Baldvin Ari Guðlaugsson fer fremstur á rauðstjörnóttum, svo Biggi á Vísi brúnum og öftust er Ásdís á Skruggu.



Það er búinn að vera ansi harður vetur á okkur nú í að verða viku og hefur verið strembið að halda öllum leiðum færum. Þá er nú gott að hafa reiðhöll þó svo að frábært sé einnig að demba sér út á melana í snjóinn og þjálfa svolítið bógvöðvana og fótaburðinn :)

Nú er fríhelgi frá keppnum og Steinþór Örn litli kappi í heimsókn en einhvers staðar verður maður að draga mörkin frá keppnum því næstu helgi verður mótið á Svínavatni, helgina þar á eftir mótið á Mývatni og þar á eftir fara sýningarnar að taka völdin, eitthvað hefur verið orðað við okkur að mæta með eitthvað af hryssunum okkar á sýningar og er verið að skoða þau mál.

Lítið myndaveður hefur verið á melunum en munum við hefja linsuna á loft um leið og snjórinn fer að minnka og veðrið að batna en mjög mikil blinda fylgir þessu mikla snjó.

Skrifað 27.2.2010 kl. 15:09 af asdishelga

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.2.2010

Nú er úti veður vont ...

Skoða nánar

12.2.2010

Let´s get the party started :)

Skoða nánar

7.2.2010

Að ríða á ís - Engu líkt

Skoða nánar

4.2.2010

Svo er hestur...

Skoða nánar

1.2.2010

Yrði glöð og létt mín lund

Skoða nánar

29.1.2010

Janúar að baki ...

Skoða nánar

18.1.2010

Dynjandi hófadynur á frosinni jörðu

Skoða nánar

13.1.2010

Frábært ár að hefjast

Skoða nánar

6.1.2010

Nýtt á söluskrá

Skoða nánar

30.12.2009

ANNÁLL 2009

Skoða nánar

13.12.2009

Jólin nálgast :)

Skoða nánar

4.12.2009

Desember er yndislegur

Skoða nánar

26.10.2009

Alveg að koma nóvember...

Skoða nánar

19.10.2009

Sumar í október .. sweet

Skoða nánar

11.10.2009

Rappenhof

Skoða nánar

2.10.2009

Þýskaland

Skoða nánar

21.9.2009

Folöldin 2009

Skoða nánar

18.9.2009

Haustið

Skoða nánar

10.9.2009

NÝ HROSS Á SÖLUSKRÁ

Skoða nánar

7.9.2009

September

Skoða nánar

31.8.2009

1. verðlauna hryssa til sölu!

Skoða nánar

28.8.2009

Vonin nær að sigra tvöfalt tvisvar :)

Skoða nánar

11.8.2009

Stórmót Þjálfa !!!

Skoða nánar

4.8.2009

Ágúst á Melgerðismelum :)

Skoða nánar

30.7.2009

Summertime --**

Skoða nánar

13.7.2009

Júlí - sól og sumar

Skoða nánar

26.6.2009

Sumarið er tíminn ..

Skoða nánar

14.6.2009

Ofur-Von !! :)

Skoða nánar

30.5.2009

Til sölu og sýningar :)

Skoða nánar

25.5.2009

Ýmislegt skemmtilegt :)

Skoða nánar

11.5.2009

Vorið er mætt með látum

Skoða nánar

1.5.2009

Allt sem er grænt grænt finnst mér vera fallegt

Skoða nánar

21.4.2009

Sumarið er að koma ...

Skoða nánar

5.4.2009

Apríl

Skoða nánar

1.4.2009

Rán frá Egilsstaðabæ

Skoða nánar

29.3.2009

Ræktun 2009

Skoða nánar

24.3.2009

Drulludrullu-Mars/MUD-MARCH

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

This page in english