Unghryssur

Eigum flottan hóp af unghryssum frá öðrum vetri til fimmta veturs. Allar eru þær gullfallegar og vel ættaðar. 

IS2003258430
Bleikála frá Kýrholti er bleikálótt falleg og efnileg hryssa. Hún var frumtamin fjögurra vetra af Gísla en lenti í smá óhappi sem var til að hún var aðeins gerð reiðfær. Hún var svo tekin inn veturinn 2008 og við héldum áfram tamningunni á henni. Hún er að verða mjög skemmtileg nú í sumar og stefnum með hana á síðsumarsýningu. Hún er undan Þokka frá Kýrholti og Flugu frá Kýrholti



IS2004258431
Skrugga frá Kýrholti er einstaklega skemmtilega efnileg hryssa. Eðlisfótaburður fær nýja merkingu þegar maður horfir á þessa hryssu. Hún er undan Rökkva frá Hárlaugsstöðum og Tign frá Akureyri. Við frumtömdum hana í vetur og var hún skemmtileg í tamningu, tölt og brokk galopið, viljinn mjög mikill og mjög fallegur eðlishöfuðburður. Hlökkum mjög mikið til að halda áfram með hana í haust eða í vetur. 

IS2004258430
Hrifning (Ljóska) frá Kýrholti er einnig sérstaklega skemmtilegt tryppi. Hún er leirljós blesótt sokkótt og undan Hróðri frá Refsstöðum og Þörf frá Hólum. Hún var mjög smá þegar við tókum hana inn í vetur og hófum frumtamningu á henni. En hún tók vaxtarkipp og var orðin að gullfallegri hryssu þegar við slepptum henni fram á dal núna í júní. Hún er sérstaklega geðgóð og auðtamin hryssa með allan gang galopinn. Mjög rúm og fótaburðurinn alveg í lagi.



IS2005258430
Þýða frá Kýrholti er brún hryssa, alsystir Bleikálu undan Þokka og Flugu. Hún er stærri en systir sín en okkur líst vel á hana og hlökkum til að byrja að temja hana í haust. 

IS2005258431
Ræða frá Kýrholti er leirljós-mjóblesótt hryssa undan Þóroddi frá Þóroddsstöðum og Þörf frá Hólum. Falleg hryssa sem spennandi verður að temja í haust.

IS2005258432
Hetja frá Kýrholti er rauðnösótt hryssa undan Hróðri frá Refsstöðum og Tign frá Akureyri.



IS2005258433

Fim frá Kýrholti er hryssa undan Flink frá Kýrholti og Þokka frá Kýrholti. Hún er pínulítil vegna þess að hún er tvíburafolald. Flink kastaði sumarið 2005 sínum fyrstu folöldum og voru þau tvö. Fim lifði af en var eingöngu eins og meðalhundur að stærð folaldið, hitt folaldið var hestur fæddur dauður aðeins sem lamb að stærð. Við bíðum með að frumtemja hana þar til hún hefur náð nægilegum þroska en hún er þrátt fyrir smæðina einstaklega falleg og fim með fallegar hreyfingar. 

IS2006258430
Vísa frá Kýrholti er fósturvísafolald undan Ófeigu frá Kýrholti og Hróðri frá Refsstöðum. Mjög falleg rauðblesótt/hringeygð hryssa. Eina tryppið sem fæddist þetta sumar



Sumarið 2007 fæddist einnig aðeins eitt folald og var það fyrsti hesturinn fæddur í Kýrholti síðan 2002. Var hann brúnn undan Aroni frá Strandarhöfða og Tign frá Akureyri. Hann var geltur sumarið 2008 en er gullfallegur.

This page in english