Tamningarstöðin Kýrholti
Tamningarstöðin okkar - Staðsetning, Melgerðismelar Eyjafirði
Við tökum að okkur hross í tamningu og þjálfun allt árið um kring. Höfum mikla reynslu af öllu sem því viðkemur, þ.e tamningu, þjálfun og svo aftur sýningum og keppni. Einnig getum við tekið að okkur að taka myndir og myndbönd af hrossum og auglýsa hér á vef okkar til sölu. Endilega hafið samband í tíma og pantið pláss.
Verðskrá tamningarstöðvar:
Tamning/þjálfun
Samtals: 50.000 kr f. utan vsk
Innifalið:
Mánaðarþjálfun jafnt úti á melum sem inni í reiðhöll
Járning af fagmanni
Röspun
Spænir og fóður (öll umhirða)
Með VSK: 62.250 kr
Reiðkennsla
Reiðkennsla; Endilega hafið samband, við komumst að samkomulagi :)
Gísli Steinþórsson f. 1980 á Sauðárkróki og uppalinn í Kýrholti og hefur alltaf haft mikinn áhuga á hestum og hefur tekið þátt í ræktuninni með Steinþóri föður sínum. Gísli stefnir á meistaranám í járningum í Noregi. Starfar hann við járningar samhliða tamningunum.

Ásdís Helga Sigursteinsdóttir f. 1983 í Neskaupstað hefur lokið stúdentsprófi við Verkmenntaskóla Austurlands árið 2002, hóf nám við Hólaskóla haustið 2004 og tók árin þrjú öll í bunu og kláraði loks sem Reiðkennari C og þjálfari vorið 2007, og hafði þá áður orðið Hestafræðingur og leiðbeinandi eftir ár.1 og tamningarmaður/FT-félagi eftir ár.2. Starfar hún við reiðkennslu samhliða tamningunum.

Svo fannst okkur nú réttast að sýna fínu aðstöðuna sem við leigjum núna og út september og verðum með í vetur. Það mun sko ekki væsa um eitt einasta hross hjá okkur! 24 eins hesta safnstíur, reiðhöll og geggjaðar reiðleiðir.

Mjög þægilegt hesthús að ganga um og hestunum líður afskaplega vel þarna

Reiðhöllin er 15x30 metrar það á eftir að bæta gólfið eitthvað fyrir veturinn

Einn af þremur hringvöllum á svæðinu við hliðina á hesthúsinu

Rán er alveg að fíla svítuna!!
En þetta er alveg hreint magnað og melarnir eru það helvíti góðir undir fót að hrossin stigbatna sem áttu yfirhöfuð erfitt með t.d harða malarvegi.